10.01.2007 02:27:55 / pesisvans

Eins merkilegt og það gerist

Ég var að fletta í gegnum síðuna hjá tónlistar-og fótboltamanninum Danna Hjalta og rakst þá á stórmerkilegar myndir. Það mætti jafnvel segja að þessar myndir séu eins merkilegar og þær verða. Á þessum myndum má sjá Atla Eðvalds, sem óþarft er að kynna, “djókboxa” við Muhamed Ali. Hér sérðu eina þessara mynda:

atli-og-ali-boxa.jpg

Ég var yfir mig hissa og um leið heillaður yfir þessum ljósmyndum og velti því fyrir mér hvort það væri möguleiki að láta taka svalari og merkilegri mynd af sér ásamt einhverjum X aðila. Ég komst að þeirri niðurstöðu að eflaust væri ekki hægt að láta taka af sér svalari mynd en Atli gerði um tíðina en það væru samt eflaust nokkrar sem kæmust ansi nálægt því.

Af þessu tilefni setti ég saman topp 10 lista yfir merkilegustu og svölustu myndir sem ég gæti hugsað mér að láta taka af mér.

10. Pósa með öðrum leikara Brokeback Mountain í kúrekafötum

9. Láta Zidane skalla mig í bringuna

8. Vera í marki þegar Maradona skorar með hendi Guðs

7. Láta Jordan troða yfir mig

6. Taka létta æfingu með Bruce Lee

5. Berjast fyrir friði með John Lennon

4. Kíkja undir pilsið hjá Marilyn Monroe

3. Sitja með Rosu Parks í strætó

2. Fá mér vindil í góðra vina hóp með Fidel Castro

1. Tefla í alvörunni við páfann

Gleðilegt ár..

Pétur Örn Svans.

Hannes skrifaði
Þetta er ein albesta bloggfærsla sem ég hef séð.
JR skrifaði
Verð að taka undir það... þú ert ansi frjór í kollinum... Hefði þó viljað láta Jordan troða yfir mig þegar hann var númer 23... Ble
.... skrifaði
Hahaha.. verst að Jóhaness páfi er dáinn..
Hannes skrifaði
Ég sakna þess samt að sjá ekki mynd af þér í Seinfeld settinu með leikarana í kringum og þig og þú með two thumbs up.
Pétur Svans skrifaði
Já auðvitað.. ég vissi að ég ætti eftir að fá svona "að sjálfsögðu" tilfinningu þyrma yfir mér með eitthvað. Seinfeld hefði verið mjög gott. Hehehe gera svona giddy upp með Kramer
Valur skrifaði
Snilld, algjör snilld. Tek undir með Hannesi, ein besta færsla sem ég hef séð. (tek líka undir með JR með Jordan í 23 en það skiptir ekki öllu).
Kjarri skrifaði
Úff... þetta er snilldarrrr... blogg. Haltu þessu áfram...
Pétur Svans skrifaði
Takk maður/menn.. ég veit samt að það er helling af öðrum "myndahugmyndum" sem hefðu verið mjög nettar. Það væri gaman að heyra hugmyndir að þeim. Ég pældi einmitt í þessu með töluna hans Jordans. Tók bara google og skrifaði Michael Jordan dunk over eða eitthvað þannig. Nennti ekki að finna troðslumynd með 23. Þið verðið bara að lifa með því. En það væri samt gaman að sjá hversu nett(ir)/ frjó-ar-ir þið eruð með að hugmynd að sniðugri mynd.
Danni Hjalta skrifaði
Nettar myndir? Hvernig væri að koma í "séð og heyrt" í skemmtistaðasleik við Paris Hilton á klúbbi í NY? Eða láta ná sér við að snorta með Kate Moss? Eða að fá mug-shot af sér handteknum fyrir að reykja hass með snoop dogg? Eða nást í "walk-off" við Haró hundadagakonung? Eða eitthvað bara...i dont know...i am so friiieed!
Höddó skrifaði
ég myndi klárlega velja að reykja vindil með Castro, eða í sjómann við Jón Pál það væri líka nett að eiga mynd af sér þar sem Tyson er að bíta af manni eyrað
Byssan skrifaði
Hahahahaha, aðeins of góð færsla!!! Með þeim betri, Hannes með hlutina á hreinu eins og venjulega ;)
hjaltiooo skrifaði
tek undir með það að þetta er frábær færsla ein sú allrabesta sem maður hefur séð.... gaman að lesa þig

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.