|
|
16.12.2007 22:36:55 / pesisvans
Ath. Þetta er gríðarlöng færsla og ég móðgast ekkert ef þið skoðið bara myndirnar. Það eru samt enginn brjóst þarna Hannes enda er þetta jólafærsla sem predikar friðar- og gleðiboðskap. Ég byrja á huglægum jólainngangi: Jólin nálgast óðfluga og öll höfum við okkar hefðir. Þegar ég var lítill man ég eftir því hversu glatt hjarta mitt varð þegar ég fór með mömmu og Herði bróður í Blómaval að sjá jólalandið þar. Ég setti á mig jólasveinahúfuna mína og hrópaði smámæltum rómi: "mamma, mamma. Getum við farið í jólasveinaland". Blómaval var alltaf með metnaðarfullt jólaland. Í dag hefur Blómaval ekki sömu áhrif á mig. Hvort sem jólalandið hefur dalað eða ég hef fullorðnast þá fer þessi barnalegi spenningur innan í manni fyrir jólunum að verða æ sjaldgæfari. Jólin eru samt sem áður alltaf mjög sérstök. Yndislegasti tími ársins. Það er svo gaman að fara í bæinn að versla jólagjafir, labba niður Laugarveginn og skoða jólaljósin og svo síðast en ekki síst... horfa á jólamyndirnar. Hér kem ég mér að efninu: Það er til heilmikið af myndum sem eru gerðar í anda jólanna. Margar þessara mynda er hægt að horfa á aftur og aftur. Þá skiptir ekki máli hversu oft þú hefur séð myndina, þegar jólin koma þá horfirðu á sömu myndirnar aftur og aftur, ár eftir ár. Maður er eins og barn sem horfir á sömu spóluna fram og aftur. Öll eigum við okkar uppáhalds jólamyndir. Hér er listi yfir mínar. 10. Groundhog day

Aljgör klassík. Bill Murray fer á kostum í hlutverki pirraðs og kaldhæðins veðurfréttamanns sem er neyddur til að upplifa sama daginn aftur og aftur. 9. Family man

Þessi er heldur í væmnari kantinum en skilur þó eitthvað eftir sig ef maður er í þannig skapi. Mjög góð og hitti vel á mig. 8. The Santa Clause

Þó að ég sé enginn aðdáðandi Tim Allen þó kemur þessi mynd manni í jólaskapið. Þrátt fyrir að vera nýleg þá er hún á hraðferð í að vera klassísk jólamynd. 7. Home alone 
Um þessa þarf ekki að fjölyrða. Það er reyndar langt síðan ég sá þessa en efast ekki um hún standi enn fyrir sínu. 6. The nightmare before christmas
 Meistaraverk Burtons á líklega fast sæti á öllum jólamyndalistum sem gerðir eru. Allavega er hún óhagganleg í 6.sæti hjá mér og gæti jafnvel farið ofar. 5. Love Actually 
Love actually er ein besta rómantíska gamanmynd sem ég hef séð. Handritið er virkilega flott og svo hefur líka áhrif hversu góðir leikararnir eru. Fylgst er með ástinni í hinum ýmsu formum. Fyndin, hugljúf og raunveruleg. 
Varúð: myndin gæti grætt mjúka menn 4. Elf 
Will Farrell er alveg topp7 uppáhaldsleikarinn minn og hann heldur þessari mynd algjörlega uppi. Myndin sjálf er frekar barnaleg og ekkert mögnuð en Will Farrell er bara svo skemmtilegur að út kemur frábær jólamynd. Skylduáhorf fyrir jólin. 3. Scrooged (198 
Þetta er alvöru jólaklassík sem kæmist á lista á IMDB o.þ.h. Þrátt fyrir að vera ekki þessi klassíska týpa þá er óumflýjanlegt að hafa þessa mynd. Hérna sér maður hvað jólin snúast í alvöru um: KÆRLEIK! 2. All I want for christmas 
All I want for Christmas er (ásamt 1.sætinu) jólamyndin á mínu heimili. Það er kvótað í hana og atriði endurleikin. Við Hörður horfum alltaf á hana á Þorláksmessunótt þegar búið er að skreyta jólatréið, fyrr myndi ég sleppa aðfangadagskvöldi en þeirri stund. Hugsunarlaus "feel good" mynd með væmnum jólaendi. 1. National Lampoon's Christmas Vacation 
Ég kíkti á nokkra lista á netinu yfir jólamyndir og ég þessi mynd var á öllum þeirra. Chevy Chase leikur fjölskyldufaðir sem dreymir um að halda stór og umfangsmikil fjölskyldujól. Því miður fyrir hann (en gaman fyrir okkur áhorfendur hehe) er fjölskyldan hans af verri endandum og allt fer úrskeiðis. Fullkominn jólamynd sem kemur manni í gott jólaskap. Mínar bestu jólakveðjur, Pétur Örn Svansson
»
30.04.2007 11:22:20 / pesisvans
Ég var að fá senda einstaklega skemmtilega
mynd frá síðasta sumri.. þar sem ég og Buxi vorum að fagna marki
á móti Víking Ó. Þetta var á þeim tímapunkti í fyrra þar sem við
vorum báðir einstaklega heitir markaskorarar og vermdum að ég
held báðir listann yfir topp markaskorara fyrstu deildar. Af
þeirri ástæðu vorum við farnir að æfa hin ýmsu fögn og æfðum við
þetta daginn fyrir leikinn. Svo heppilega vildi til að við
skoruðum báðir og fögnuðum svona:

Ég man eftir því að við pældum í því daginn áður
að lokastig fagnsins væri á gráu svæði en þar sem fyrri hluti
fagnsins var svona óendanlega svalur ákváðum við að taka "þetta
reddast" lausnina á þetta. Eins og þið sjáið þá reddaðist þetta
ekki beint enda þætti þetta múf jafnvel vafasamt á Q-bar. Ég hef
samt no regrets nema.. ef þið kíkjið á mynd 1, þá sleiki ég ennið á
Buxa með hælnum og fékk hann smá skeinu fyrir þær sakir. Núna er
einmitt nýtt sumar að hefjast, fyllt fögrum fyrirheitum. Við Buxi
fáum þó bara tvö tækifæri í sumar til að endurtaka fagnið þar sem
við leituðum báðir á ný mið fyrir komandi sumar.
Annars verður mjög gaman að fylgjast með
fótboltanum í sumar.. Ég á náttúrulega blóðbræður í 1.deildinni,
hef engar áhyggjur af þeim enda eru þeir með virkilega svalt og
gott lið og mun Freysi sýna sína miklu leiðtogahæfileika sem
fyrirliði.. reyndar mjög stór spor sem hann fetar þarna en ef
einhver getur það þá er það Freyr.. Svo verður líka gaman að sjá
ungu strákan stíga upp og taka ábyrgð.. Ég er líka spenntur að sjá
Kobbsinator skora jafn grimmt á vellinum og utan hans. Vona líka að
Dóri eldri sýni hvað hann getur. Gæti nefnt alla í liðinu en eins
og þeir vita allir þá er ég ekki þessi fótboltanarritator. Óska
þeim að sjálfsögðu öllum alls hins besta uppfrá. Svo erum við
vinirnir að spila með Fram og Víking. Það verður mjög gaman að mæta
Hannesi enda er hann óðum að nálgast sitt besta form eftir
leiðindar meiðsli á undirbúningstímabilinu. Ég er samt fegin að
vera ekki varnarmaður þegar við mætum Val og Keflavík.. það verður
samt skemmtilegt að mæta Danna Hjalta og Buxa.. ég er reyndar bara
fegin yfir höfuð að vera ekki varnarmaður.
Jæja, gott í bili enda væri ekkert vitlaust að
fara læra.
»
21.04.2007 16:09:12 / pesisvans
Núna virðist
samkundumiðstöðin MySpace vera að gera allt vitlaust í heiminum.
Vinsældir síðunnar eru óumdeilanlegar. Nú síðast var ég að horfa
á The O.C. þar sem Summer nennti ekki að hanga með Seth því hún
ætlaði að vera á MySpace. Einnig man ég eftir að hafa heyrt
minnst á síðuna í Entourage (ótrúlega skemmtilegir þættir),
Scrubs og fleiri þáttum. Fyrir þá sem eru ekki alveg með á
nótunum þegar kemur að myspace þá er þetta netsíða þar sem hver
og einn notandi hefur sitt eigið svæði/síðu. Á síðuna setur
viðkomandi upplýsingar um áhugamál, uppáhalds myndir, bækur,
sjónvarpsþætti, fyrirmyndir o.þ.h. Einnig gefst notendum sá
möguleiki að hafa myndir af sér og vinum sínum. Notandi velur
útlit síðunnar og getur verið að dúlla sér í hinu og þessu. Það
sem er skemmtilegt við síðuna er að notendur adda hvorum öðrum
sem vinum og geta í framhaldi af því sent á milli sín myndir,
komment og skilaboð. Þetta er einstaklega skemmtilegt t.d. þegar
vinahópur ætlar að hittast næstu helgi og vikan er notuð á
myspace til að senda á milli gamlar myndir, einkahúmorskomment
og fleira í þessum dúr. Möguleikarnir eru fjölmargir.
Það er ein hlið
myspace sem mig langar að koma inn á hér í dag. En það er val á
myndum sem notendur hafa af sér. Þá er ég sérstaklega að beina
orðum mínum til stráka sem eru að nota myspace í hössl-legum
tilgangi. Ég hef hugsað þetta MySpace myndamál til þaula og komist
að því að hver sá sem ætlar sér stóra hluti á myspace þarf að hafa
cirka 8 myndir sem hver og ein sýnir mismunandi hlið á persónuleika
og/eða útliti viðkomandi. Til að sýna hvað ég er að fara með þessu
mun ég láta fylgja myndir af myspace-um vina minna og kunningja í
leyfisleysi.
Eftirtaldar myndir
tel ég vera hornsteinn í að ná árangri á myspace:
1.Kynþokkafull
mynd
Hér er mynd sem sýnir þig kynþokkafullan. Þetta er samt hættulegur
leikur því það er mjög auðvelt að gera þetta hallærislegt. En ef
rétt er spilað úr spilunum þá getur þetta verið mikilvægasta
myndin, svona myndin sem stelpan sýnir vinkonum sínum. Til þess að
þetta lendi ekki vitlausu megin við línuna er gríðarlega mikilvægt
að hafa e-ð fyndið komment undir myndinni til að vera ekki alveg
sorglegur. Þessi mynd er nauðsynleg til að stúlkan viti að þú ert
heitur gaur og finni líkama sinn vilja þig.
Hér má sjá
gott dæmi um kynþokkafulla mynd. Það sem bjargar henni frá því að
vera hallærisleg er lúmskt glott á vörum og andliti fyrirsætunnar
og sú staðreynd að viðkomandi er meðalmanninum nokkrum stöðlum
fremri.
2.Flippuð mynd
Sýnir að þú sért ekki bara fallegur líkami heldur líka
uppátækjasamur. Þessi mynd segir henni: “ef þú hengur með mér þá
get ég tryggt að þú skemmtir þér”. Hugmyndir um mynd af þessu tagi
eru myndir af þér í grímubúning, með einhverju dýri, fyndin
nektarmynd eða hangandi í ljósastaur.. áhorfandi á að hugsa með sér
“hvað í ósköpunum er í gangi á þessari mynd” eða “vá hvað það er
örugglega góð saga á bakvið þessa mynd”.
ég held ég geti með sönnu sagt að þú finnur ekki
betur heppnaða mynd til að fylla flipp-kvótann á myspace. Það
er svo skemmtilegt hvernig hann nær að láta þetta líta út eins
og þetta sé bara eðlilegur hluti af hans daglega lífi. Þessi
mynd er líka sniðug þar sem hún sýnir að hann er massaður
gaur.
Hér má sjá Þrumarann taka eina af sínu frægu
grettum. Þessi mynd er gott dæmi um flippmynd á myspace. Hún
segir stelpunum: "þú munt hlæja með mér". En svo er hann
náttúrulega með myndir líka sem segja að þið munið gera annað
en að hlæja bara.. sem sagt með réttri samsetningu mynda segir
þú að þú sért skemmtilegur en samt engin trúður.
Önnur góð flippmynd.
3.Sæt/falleg
mynd
Þessi mynd er ekki sexý en sýnir samt að þú getur verið sykursætur
og um leið gefurðu þá frá þér þá strauma að þú sért góður og
jafnvel barngóður.
Klassísk pretty-boy mynd. Viðfang er í
action en gefur sér samt tíma til að daðra við vélina.
Önnur classic pretty-boy. Viðkomandi er í
partý-i, og sýnir hér með að svona lítur hann út í daglega lífinu.
"Ég get hitt þig hvenær sem er og alltaf litið vel út" er hann að
segja með þessari mynd.
Annað gott dæmi um mann sem hefur ekkert að
fela.
4.Ferða/ævintýramynd
Þessi mynd er frekar crusial þar sem hún sýnir að þú ert ekki
þessi döll endurskoðanda týpa. Þú ert ekki hræddur við að synda á
móti straumnum og gera eitthvað óvenjulegt. Það að hafa ferðast
mikið bætir líka svona mistery kryddi í pottinn. Það er alltaf smá
óvissa í huga stúlkunnar.. átti hann sjóðheitt ástarævintýri með
einhverri latino senjorita. Það gerir hana smá óörugga sem gefur
þér þ.a.l. svona 10% forgjöf í hand.

Klassísk ferðamynd þar sem aðili er að
prófa framandi hluti með útlendingum.
Frábær ævintýramynd. Þessi mynd hrópar á
góða sögu. "já ég get sko sagt þér góða sögu frá þessari mynd
vænan".. Copyright á línu: Hannes
5.Vinamynd
Það er mikilvægt að hafa líka mynd(ir) af vinum þínum. Þessi mynd
þjónar tvíþættum tilgangi. Númer eitt: sýnir að þú átt vini og ert
ekki bældur, vinalaus auli. Það er mikilvægt fyrir stúlkur að
karlmaðurinn hafi sterka félagslega stöðu því allar vilja þær
alphamale. Og seinni tilgangurinn með vinamyndinni er að sýna að þú
ert ekki algjört egó sem er bara með myndir af sjálfum þér á
myspace-inu.

Klassísk vinamynd.. kannski helst til of margir þannig að að
maður gæti bara verið hluti af hópi en ekki í raun átt sanna vini.
En þessi sleppur samt alveg rúmlega sem vinamynd.

Þetta er alveg klassísk vinamynd. Fámennur hópur vina sem er
að taka létt flipp. Þessir strákar eru augljóslega ekki vinalausir
aular heldur alphamale
6.Artý-mynd
Þessi mynd er ekki nauðsynleg en hún hjálpar samt mikið til. Það
að sýna fram á að þú hafir listhneigða hlið opnar fyrir þér alveg
nýjan vettvang. Þetta er vettvangur þar sem hnakkinn eða
íþróttatjokkóinn á ekki séns. Bættu við einni eða tveimur
photoshopmyndum og þá eru þér allir vegir færir. Það þarf samt að
passa að sýna ekki artýlistarembing í þessari mynd og hafa hana nær
húmornum frekar en ekki nema þú sért einstaklega hæfileikaríkur á
þessu sviði.
Þetta er fínt dæmi um
semí artý mynd. Þetta er greinilega gaur sem er ágætis týpa og
gjaldgengur á alla vettvanga sem hann girnist.

Artý mynd með
húmor..
7.Gömul mynd
Nú er vinsælt að hafa gamlar skannaðar myndir á myspeisinu. Fyrir
utan að það er ótrúlega skemmtilegt að skoða þessar myndir þá sé ég
einn hugsanlegan hössl tilgang með þeim. En það er að hafa mjög
sætar barnamyndir af þér og senda þá frá sér skilaboðin: góð gen=
góður til undaneldis= vertu með mér og þú eignast falleg börn.
Soldið vafasamt en hey come on, getur ekki skaðað. Ágætlega
mikilvæg mynd en ekki nauðsynleg.

Hér má sjá vel heppnaða gamla mynd.

Klassíks gömul skönnuð mynd sem uppfyllir
öll skilyrðin.
Hér höfum við þessa klassísku dúllumynd.
Barnið er mikil dúlla á myndinni og svo eru byssur á myndinni sem
geta verið tilefni til skemmtilegra umræðna og viðkomandi getur
jafnvel sagt sögur þegar hann fékk að prófa byssu fyrst og svona.
Ógrynni af efni og afþreygingu í þessari mynd.
8.Semí-ljót
mynd
Þessi mynd á ekki að vera beint ljót af þér en samt áttu ekki að
vera upp á þitt besta. Með þessari mynd sýnir þú að þú ert ekki að
pæla of mikið í útlitinu og ert alveg sama þó þú sért ekki alltaf
upp á þitt besta. Þetta er frekar mikilvæg mynd.

Þessi maður er greinilega mjög öruggur með
sjálfan sig þar sem hann hefur sjálfstraust í að sýna sig æla. Ég
mæli ekki með þessu nema fyrir lengra komna. En þessi mynd vekur
hlátur og sýnir að hann pælir ekki of mikið í útlitinu.
Það er líka sígilt að hafa mynd þar sem maður
er að borða sem semí-ljóta mynd. Grettumynd ætti líka vel við
hér.
Eins og gefur að skilja þá eru fáir sem eru
sterkir á öllum þessum sviðum. Þess vegna er mikilvægt fyrir alla
sem lesa þetta að taka sér nokkar mínútur í hugleiðslu (ekki kukl
hugleiðslu heldur bara staldra við og hugsa) og reyna átta sig á
því að hver þeirra sterka hlið sé. Þeir sem eru hafa ferðast mikið
og eru ófríðir hafa þá heldur nokkrar ferðamyndir af sér í staðin
fyrir kynþokkafullar myndir. En það þarf samt að passa að hafa ekki
bara ferðamyndir, eða bara vinamyndir eða bara artý-myndir.
Lykillinn er að finna hina fullkomnu samsetningu af öllum þessu
hlutum. Þetta hér að ofan er bara uppskrift, þið verðið að finna
þau hlutföll sem henta ykkur.
Í lokin vil ég
koma því á framfæri að þessi grein er skrifuð með Seinfeld sem
fyrirmynd og skal ekki taka 100% alvarlega. Hún er skrifuð sem
vitundarvakning þar sem boðskapurinn er: ekki gera neitt í
hugsunarleysi.
Lifið vel og
blómstrið,
Pétur
Svans
»
10.04.2007 00:46:44 / pesisvans
Þegar ég velti því fyrir
mér hver bestu atriði kvikmyndasögunnar eru koma strax nokkur
atriði upp í hugann. Þetta eru atriði á borð við “Luke, I am
your father” úr Star Wars, Forrest Gump með sína rómuðu
konfektkassalíkingu, hin eitursvala ræða Samuel L. Jacksons sem
inniheldur hin (já já ég þéra þetta hiklaust) ódauðlegu orð:
“And you will know my name is the Lord when I lay my
vengeance upon thee”. Einnig er skylda að nefna þegar Sharon
Stone hagræddi fótstöðu sinni í yfirheyrslu í myndinni Basic
Instinct, hesthausinn í The Godfather, ybbi-kayjei motherfucker
eða atriðið þar sem Kate og Leo sigruðu heiminn í stafni
Titanic. Þetta eru allt atriði sem fyrir löngu eru búinn að
festa sig í sessi sem stærstu atriði sögunnar.

Mig langar aftur á móti
að gera lista yfir þau atriði kvikmyndasögunnar sem mér finnst
einna skemmtilegust, jafnvel nettust og hafa snert sérstaklega við
mér. Sum þessara atriða eru kannski ekki viðurkennd í heimi
kvikmyndanna en þið þekkið eflaust tilfinninguna sem þið fáið þegar
þið sjáið eitthvað sem ykkur finnst virkilega geðveikt.. maður
verður þvílíkt glaður yfir því að einhverjum skuli hafa getað
dottið þetta í hug og að maður sé að upplifa þetta en
hamingjutilfinningin er blönduð dashi af angist. Angist yfir því að
þetta er bara kvikmynd og manns eigið líf verður aldrei jafn
áþreyfanlegt. Þó getur manns eigið líf vissulega verið mjög
merkilegt en það verður aldrei bíómynd. Í bíómyndum er þessi
tónlist og stemming sem virkilega kallar fram hlátur, gæsahúð,
tárin.. á meðan lífið.. já lífið bara gerist. Allavega.. þá eru
þetta atriði sem mér finnst frábær og eru uppáhalds atriði mín í
kvikmyndasögunni.. allavega þeirri kvikmyndasögu sem lífsleið mín
hefur spannað. Flest þessara atriða kannast allir við en svo eru að
sjálfsögðu eitt tvö vafasöm. Ok helling af orðum komið í innganginn
en fæst þeirra merkja eitthvað af viti.. En þegar ég fjalla um
næstu atriðin þá nenni ég ekki hafa alltaf eitthvað “váááá hvað
þetta er geðveikt atriði”.. ég stilli sem sagt tilfinningunum í hóf
þegar ég lýsi þeim en staðreyndin að þau séu á listanum talar sínu
máli.
Dömur mínar og herrar.. án frekar
málalenginga aka without further ado.. þá kynni ég stoltur topp 10
lista yfir nettustu atriði kvikmyndasögunnar:
10. Shawshank Redemption-
Þegar fangelsisstjórinn kastar taflmanni í gegnum
veggspjaldið.
Þetta atriði á eflaust heima í
innganginum með klassíkinni en þetta atriði fer hér því þetta er
eitt það.. uuu ekki beint svalasta en samt svona vó atriði sem ég
hef séð og Shawshank er ein af mínum uppáhalds myndum. Atriðið þarf
eflaust ekki að kynna en fyrir þá sem hafa bara skoðað internetporn
síðan 1994 þá er þetta þegar fangelsisstjórinn skilur ómögulega
hvernig Andy slapp úr fangelsinu en fattar það þegar hann kastar
taflmanni í gegnum veggspjald á vegg í fangaklefa Andy. Hálf
kjánalegt að lýsa þessu atriði.
9. Love Actually-
Ástarjátning á spjöldum.
Þetta atriði bræðir hörðustu menn... jafnvel handrukkara og
morðingja. Það sem mér finnst gefa þessu atriði svona aukið flava
er útsjónarsemin hjá gaurnum með spjöldin: “segðu að þetta séu
jólasöngvasöngvarar”.. flott hvernig hann sá fyrir öllu. Minnti mig
á útsjónarsemi Seinfeld þáttanna.
8. The Mask- þegar Cameron Diaz
gengur inn á bankann.
Hver man ekki eftir stundinni þegar Cameron Diaz kom inn í líf
okkar klædd rauðum veðurbörnum kjól. Ég man það eins og það hefði
gerst í gær. Árið var 1994 og ég var 10 ára gutti að verða var við
hvolpavitið. Ég held svona grínlaust að þetta atriðið hafi
kickstartað hvolpavitinu upp á næsta stig. Ekkert meira um þetta að
segja.
7. Vegur- Þar
sem Rúnar er dauður í speglinum
Hið magnaða meistaraverk Hannesar Þórs Halldórssonar, Vegur er
ástæðan fyrir því að ég sef ennþá með ljósin kveikt og fer ekki
óvopnaður út á þjóvegi landsins. Atriðið þegar bílstjóri bílsins
lítur í bakspegilinn og sér Rúnar hræðilega útleikinn í aftursæti
er um eilífð grafið í minni mér. Úff get ekki talað meira um
þetta.
6. The Girl
Next Door- Hetjukossinn í partýinu.
Áður en ég byrja þá geri ég mér grein fyrir þeim gagnrýnisröddum
sem koma upp við að hafa girl next door á listanum. En við ykkur
hef ég eitt að segja: stingið þið því þar sem sólin ekki skín.. já
ég er bad-ass en hef mjúka hlið. Málið er að Girl Next Door er ein
besta mynd sem ég hef séð og ég hef kvikmyndamógúl til að bakka mig
upp (GSM:8234804). En atriðið þar sem hann er búinn að vera hanga
lengi með þarna gellunni í næsta húsi og fer svo með hana í partý
þar sem vinsælu strákarnir í skólanum fara að reyna við hana og
reka hann út úr partýinu. Hugrekkið sem hann sýnir þá er mér
fyrirmynd á hverjum degi. Hann gengur á milli hennar og einhvers
gaurs og kyssar hana djúpum kossi.. myndavél hringsólar.. this
years love með David Gray ómar í eyrum líkt og fyrir töfra..
gæsahúð myndast á húð áhorfandans. Þetta er svona atriði sem gerist
ekki í daglega lífinu.. allavega ekki með tónlistinni og
hringsólinu sem gefur þessu aukin kraft. Jæja 6.sætið smá hýrt en
það hefur aldrei drepið neinn.

ATH. SMÁ SPOILER.
5. Hot Fuzz- Feiti skýtur upp í loftið.
Þar sem Hot-Fuzz er glæný ætla ég ekki að tala nánar um þetta. En
þeir sem hafa séð myndina vita alveg hvað ég er að tala um. Það var
annað hvort þetta atriði eða þegar hann sparkar í hausinn á gömlu
konunni. Ég varð strax hughrifinn af þessu atriði og vissi um leið
að það myndi kveikja bros eða allavega glott næstu árin þegar ég
hugsa til þess. Líklega topp 3 fyndnasta sem ég hef séð í bíómynd
(hin atriðin eru í 2.sæti hér á þessum lista og svo geymdi ég eitt
sæti fyrir eitthvað sem ég er að gleyma.)
4. Starsky and
Hutch- byrjunaratriðið þar sem þeir eru að kynna sig.
Starsky and Hutch er uppáhaldsmyndin mín og þetta byrjunaratriði
hefur einna mest um það að segja. Þegar þeir eru að kynna sig og
Ben Stiller í hlutverki Starsky segir: in Bay-City the rule is, you
cross the line-your nuts are mine.. þá veit maður að þetta er ekki
færibandamynd. Allt við þetta atriði er magnað. Nenni ekki að fara
nánar í það.
3. Almost
Famous- Tiny Dancer rútuatriðið.
Þetta er líklega besta feel-good atriði sem ég hef séð. Stemmingin
sem myndast við að horfa á það er einstök. Bros er óhjákvæmilegt og
ósjálfrátt fyllist maður gleði. Lagið Tiny Dancer gerir þetta
atriði ódauðlegt.
2. Around the
world in 80 days- gamla konan skellur á andlitið.
Þetta atriði er smá svona kult hjá mér og þríeykinu. Ég sá þetta
atriði fyrir svona þremur árum og vissi um leið að þetta væri það
fyndnasta sem ég hafði séð og mun líklega nokkurn tímann sjá. Það
er líka mjög þægilegt að vita hvað er það fyndnasta sem ég hef séð.
Þetta atriði er allavega í Jackie Chan myndinni Around the World in
80 Days og felur í sér gamla konu sem dettur beint á andlitið..
þetta er sko ekki bara að detta á andlitið heldur ÞRUSAST hún beint
á andlitið. Það er frekar erfitt að lýsa þessu en ef þú hefur séð
það þá veistu hvað ég er að tala um. Ég reyndi að finna brot af
þessu á netinu en það gekk ekki. En ef það er einhver þarna úti sem
deilir þessar ást með mér þá bið ég endilega að kommenta hér að
neðan.
1. Napoleon
Dynamite- Dansatriðið
Ég get með fullkomnlega hreinni samvisku sett þetta atriði í
fyrsta sæti hérna. Þetta dansatriði er ástæðan fyrir því að ég
ákvað að gera þennan lista. Ég ætla rétt að vona að þetta atriði
þurfi vart að kynna fyrir nokkrum manni. Hér dansar Napoleon
Dynamite við lag Jamiroquai, Canned Heat, á hreint ótrúlega svalan
hátt. Málið er að hann er alveg fáranlega mikill lúði alla myndina,
á ekki marga vini í skólanum, skíttapaði í genalottóinu og hefur
nánast ekkert “going for him”. EN í cirka 2-3 mínútur í myndinni þá
sér maður nýja hlið á þessum lúða.. Moon-bootsin hans verða cool,
hárið á honum eftirsóknarvert og danssporin hans nýtt lífsmarkmið.
Tjékk it.
Þetta voru ekki fyrstu 10
atriðin sem mér datt í hug. Það voru nokkur sem voru við það að
detta inn á listann.
Þau atriði sem gerðu
tilkall:
-Shawn of the dead, þegar þeir
eru að slást við uppvakninga og ætla að henda í þá plötum. En þá
fara þeir að flokka það hvaða plötum þeir ætla að henda.
-American History X, þegar
hann stappar á manni á kantsbrún.
-School of rock, atriðið á
tónleikunum.
-Fightclub, þegar Brad Pitt
segir frá þegar maður bíður annað hvort klofið eða rassinn í
þröngum rýmum, eftir því hvort maður vilji viðkomandi eða ekki.
-Borat, þegar hann slæst við
fatty-ið.
-Anchorman, þegar hann er að
vinna í byssunum og byrjar að telja í 1000 þegar gellan kemur
inn.
Þá er þetta orðið ágætt.. Bíst
alveg við kommentum á borð við: heyyy þú gleymdir þessu atriði. Ég
segi nei við því.. þessi listi er fullgerður og verður ekki
haggað.
Farinn til Portúgal í fótbolta
og sólbað,
Pétur Örn Svansson
P.S. lifi feminisminn.
»
06.03.2007 00:59:31 / pesisvans
Afdrifarík
helgi að baki og kaldur en um leið blíður mánudagur tekur við
mér.
Eins og glöggir
lesendur mínir hafa vafalítið, jafnvel vafalaust tekið eftir þá
leita ég oft í hlýjan og elskandi faðm sjónvarpsins. Hvort sem ég
sækist eftir gleði, frið, von eða bara good old entertainment, þá
hefur sjónvarpið alltaf upp á eitthvað að bjóða. Það er einn hins
vegar einn póll sem er til þess fallinn að taka stað sjónvarpsins.
Þessi póll hefur upp á ótal margt að bjóða sem stenst sjónvarpinu
auðveldlega snúninginn. Vissir þættir þessa póls eru sjónvarpinu
meira að segja það mikið fremri að hann lætur sjónvarpið líta út
eins og hárið á Donald Trump samanborið við hárið á MIKA (vafalust
vafasöm líking). Þessi umræddi póll er náttúran okkar, sameign
okkar allra. Um helgina fékk valin hópur heppinna jarðarbúa að sjá
tunglmyrkva. Að sjálfsögðu vorum við Íslendingar á meðal þeirra
útvöldu enda höfum við aldeilis unnið í fæðingarlottó-inu. En
helgin var merkileg fyrir fleirra en að fulltrúar
þjóðhátíðarstemmingar fengu ekki að tjalda í Smáralindinni vegna
eldhættu. Ójá, um helgina var líka tunglmyrkvi.
Tunglmyrkvi er
eitt það fallegasta sem móðir náttúra hefur upp á að
bjóða. Þegar eyru mín heyrðu að um helgina yrði
tunglmyrkvi þá gladdist hjarta mitt ógurlega. Hendur mínar, í
samstarfi við augu mín, fundu til myndavél og allur líkaminn var
snögglega hulinn hlýjum en um leið smart fötum. Þessi stund var
yndisleg í alla staði og mun hún vera grædd í minnisrásum heila
míns svo lengi sem hjartað slær. Mig langar að deila þessari stund
með ykkur, svo yndisleg var hún. Til þess að gera mér það kleyft
tók ég 756 myndir frá tunglmyrkvanum. Eftir að hafa rennt yfir þær
allar svona tvisvar þá valdi ég út fjórar flottustu myndirnar. Það
var samt mjög erfitt að gera upp á milli þeirra.
Svona lítur tunglmyrkvi út.
Þetta var
klárlega hápunktur kvöldsins.
Þessi er mín
uppáhalds.
Þessi ekki
alveg jafn flott en ég varð bara að láta hana fylgja.
Svona í lokin á
þessari færslu þá vil ég bara þakka nokkrum aðilum fyrir eitt allra
besta laugardagskvöld sem ég hef upplifað. Þið vitið hverjir þið
eruð en í anda Circle of Trust þá fáið þið ekki lengri þakkir
hér.
Good to be back,
PÖS
»
10.01.2007 02:27:55 / pesisvans
Ég var að fletta í gegnum síðuna hjá tónlistar-og
fótboltamanninum Danna Hjalta og rakst þá á stórmerkilegar
myndir. Það mætti jafnvel segja að þessar myndir séu eins
merkilegar og þær verða. Á þessum myndum má sjá Atla Eðvalds,
sem óþarft er að kynna, “djókboxa” við Muhamed Ali. Hér sérðu
eina þessara mynda:

Ég
var yfir mig hissa og um leið heillaður yfir þessum ljósmyndum og
velti því fyrir mér hvort það væri möguleiki að láta taka svalari
og merkilegri mynd af sér ásamt einhverjum X aðila. Ég komst að
þeirri niðurstöðu að eflaust væri ekki hægt að láta taka af sér
svalari mynd en Atli gerði um tíðina en það væru samt eflaust
nokkrar sem kæmust ansi nálægt því.
Af þessu tilefni setti ég saman topp 10 lista yfir merkilegustu
og svölustu myndir sem ég gæti hugsað mér að láta taka af mér.
10.
Pósa með öðrum leikara Brokeback Mountain í
kúrekafötum

9. Láta Zidane skalla mig í bringuna

8. Vera í marki þegar Maradona skorar með hendi
Guðs

7. Láta Jordan troða yfir mig

6. Taka létta æfingu með Bruce
Lee

5. Berjast fyrir friði með John
Lennon

4. Kíkja undir pilsið hjá Marilyn
Monroe

3. Sitja með Rosu Parks í
strætó

2. Fá mér vindil í góðra vina hóp með Fidel
Castro

1. Tefla í alvörunni við
páfann

Gleðilegt ár..
Pétur Örn Svans.
»
25.12.2006 18:02:06 / pesisvans
»
13.12.2006 00:27:14 / pesisvans
Í próflestri mínum er ég alltaf að læra eitthvað nýtt. Núna eru
flestir í mínu umhverfi líka í prófum og er rútínan hjá öllum mjög
svipuð. Fólk situr fyrir framan tölvuna að skoða glærur úr tímum og
glósur frá einhverjum samviskusömum. Þessi rútína gefur mér samt
tækifæri til að kynnast hliðum á vinum mínum sem ég vissi ekki um.
Á meðan vinir mínir sitja í sakleysi sínu með i-tunes í gangi og
eru "busy" á msn er ég að fylgjast með þeim. Það er nefnilega
hægt að komast að mörgu skemmtilegu með tækninni í dag, þ.á.m.
hvaða tónlist verður fyrir valinu á meðan legið er yfir bókunum,
það stendur nefnilega undir nafninu hjá þeim á MSN. Tveir vinir
mínir hafa sýnt á sér ansi skrautlega hlið síðustu daga og fann ég
mig bara knúinn til að deila henni með ykkur. Eftirfarandi lög hafa
komið reglulega upp hjá viðkomandi einstaklingum.
Hannes Þór
Halldórsson:
-
Barbie Girl- Aqua
-
Hvað hef ég að tapa- Igor
-
My heart will go on- Celine Dion
-
I´m too sexy- Right said Fred
(er hann bara að hlusta og hugsa með sér "já ég alveg sexy
gaur)
-
I wanna sex you up- Color me bad
-
She bangs- Ricky Martin
-
Waterloo- ABBA
Kjartan Örn
Þórðarson
-
Förum alla leið- Snooze
-
Will 2K- Will Smith
-
Irreplaceable- Beyonce Knowles
(get reyndar ekki böggað þig á því en gaman að finna B-brotha)
-
From a distance- Bette Midler
-
Invisible- Clay Aiken
-
When two become one- Spice girls
-
One day in your life- Anastacia
Já misjafn er smekkur manna. Ekki samt koma með eitthvað
skítabögg um að ég hlusti á glataða tónlist. Það vita allir að
tónlistarsmekkur minn er ekki töff.
Ég var samt að komast að einu öðru í próflestrinum en það er að
stelpur gera númer 2. Ég hef lengi lifað í afneitun en komst ekki
hjá því að viðurkenna þessa staðreynd þegar ég fékk borð fyrir utan
klósettið í Odda. Allan daginn var stöðug ásókn kvenna í þá aðstöðu
sem salernið hafði upp á að bjóða og mark my word.. margar þeirra
voru ekki bara að púðra á sér nefið.
Back to business
PÖS
»
07.12.2006 23:16:23 / pesisvans
Svona þegar prófin eru alveg að fara með
ykkur þá skuluð þið hafa eitt í huga.. aðstæður gætu verið mun
verri.













hægra megin á myndinni


þið gætuð litið svona út


Og svo í lokin set ég myndasyrpu af þrautseygnum
snigli. Það var eitthvað sem heillaði mig







Gangi ykkur vel
»
29.11.2006 17:41:57 / pesisvans

Allt í lagi, nú er kominn tími á status check
varðandi sjónvarpsþætti og download. Það sem er nefnilega svo gott
við prófin er að nú eyði ég miklum tíma á Þjóðarbókhlöðunni a.k.a.
Hlöbbanum a.k.a. Hlöddaranum. Þar er alveg einstaklega gott að
downloada. Ég kveiki bara á tölvunni og set download í gang og
dembi mér svo í bækurnar. Gulli Axel vinur minn í Sálfræðinni eða
Gulli-Glósa eins og ég kýs að kalla hann gerir mér lífið reyndar
aðeins auðveldara með því að gefa mér the gift of time. Hann er alveg
einstaklega vel búinn glósum, ergo minni tími í lesturinn, ergo
meiri tími í að fylgjast með því heitasta í þáttamenningunni.
Þessa dagana er ég aðallega að horfa á þrjá
þætti. Þessir þættir eru:
Scrubs
Fyrir ykkur sem hafið ekki nú þegar sökkt ykkur í þennan brunn
hamingju, gleði, húmors, lífsinnsæis og skemmtunar þá eigið þið
fram undan gott jólafrí. Hér áður hafði ég dottið inn í einn og
einn þátt og fundist bara hin fínasta skemmtun, en þeir snertu mig
ekkert meira en það. Ég held að margir þarna úti séu með þetta
viðhorf. Málið er samt að þættirnir eru svo miklu miklu meira.
Hingað til hafa verið þrír þættir sem eru óumdeilanlega bestu
gamanþættir okkar tíma (þá eru ekki meðtaldir einhverjir gamlir
breskir gullmolar) . Það hafa verið The Office, Seinfeld og
Arrested Development. Þessir þrír hafa borið höfuð og herðar yfir
aðra þætti. Ég vil meina að Scrubs brjóti þessa þrenningu og geri
með þessum þremur ferningu. Hann nær að skipa sér sess með þeim
allra bestu.
Það sem
ég hef fyrir mér í þessu er eftirfarandi. Ég tel Scrubs með Zach
Braff í fararbroddi, hafa náð að sameina þá tvo eiginleika sem
virðast skipta gamanþáttum í tvennt. Þessir eiginleikar eru:
1. Létt “heilalaust” flæði. Þetta er einkennandi fyrir þætti sem
getur verið mjög gaman að horfa á, þeir skilja lítið eftir sig en
maður hlær oft mikið og þarf ekki að vera að hugsa mikið. Oft mikið
um slapstick. Það er hægt að horfa á þessa þætti undir öllum
kringumstæðum: á meðan maður tekur til, sofna yfir eða bara til
skemmtunar. Friends, King of Queens o. þ.h. eru dæmi um þætti sem
einkennast af þessu.
2. Djúpur og greindur húmor með innsýn inn í
mannlegt eðli og kringumstæður sem við öll lendum í. Þetta er
einkennandi fyrir þætti sem að fólk horfir á og hugsar með sér “vá
hvað þetta eru miklir snilldar þættir”. Þættir í þessum flokki
einkennast af einstakri innsýn handritshöfunda inn í mannlegt eðli.
Oft á tíðum koma kringumstæður sem maður sjálfur kannast við úr
sínu daglega lífi og viðbrögð persóna í þáttunum oft svipuð og
manns eigin yrðu eflaust. Þessir þættir verða oft ekki vinsælir
strax. Dæmi um það eru Seinfeld og The Office. Fyrst voru þeir
ekkert rosalega vinsælir, í kringum þá myndaðist hálfgert kult sem
smitaði svo út frá sér, en nú eru þeir með vinsælli þáttum.
En það sem Scrubs hefur fram yfir aðra þætti er
að þeir lenda þarna á milli þessara flokka. Scrubs eru mjög
þægilegir í áhorfi. Þeir renna ljúflega í gegn með góðu flæði.
Þrátt fyrir það hafa þeir þessa greind sem gefa þáttum svona edge
yfir aðra þætti. Það sem er líka svo flott við Scrubs að það eru
margar einstaklega vel heppnaðar persónur sem allar eru
óborganlegar. Áhorfandinn fær líka að kynnast þeim mjög vel og því
er allavega ein þeirra sem maður getur samsvarað sér með og í raun
haldið með.
Ég nenni
ekki að tala meira um Scrubs en mark my word, þeir eru þess virði
að sökkva sér í frá byrjun. Ég er með fyrstu 5 seríurnar á tölvunni
minni ef þið viljið ganga í klúbbinn.
Heroes
Eins og flestir sem fylgjast eitthvað með þá er ég á kafi í þáttum
sem heita Heroes. Þetta eru nýir þættir og eru bara komnir 10
þættir út en það bætist einn við í hverri viku. Þetta eru þættir
þar sem fylgst er með fólki úr mismunandi áttum sem er að átta sig
á að það er með einhvers konar ofurkrafta. Kraftarnir eru
mismunandi eftir fólkinu en t.d. má nefna hæfileikann til að
fljúga, tímaflakk, græða sár, mála framtíðina o. fl. Við fáum að
kynnast fólkinu takast á við þessar breytingar og það í sjálfu sér
er mjög spennandi og töff. Öll eiga þau líka eigin baksögu sem við
kynnumst. Undirliggjandi söguþráður er svo heimsendir sem felst í
sprengju í New York. Sögur einstaklinganna eiga svo eflaust eftir
að fléttast saman í þeirri von að bjarga heiminum. Þetta er
magnaður þáttur og ekki beint svona Prison Break slash 24 spenna
heldur er maður meira forvitinn að vita hvað gerist næst, hvernig
kraftarnir þróast og hvernig sögur þeirra tengjast. Þættirnir eru
allavega búnir að vera mjög góðir hingað til. En ég man nú þegar
fólk hélt ekki vatni yfir Lost hér fyrir stuttu. VONBRIGÐI. Ég vona
samt að það gerist ekki með Heroes.
Prison Break, sería 2
Sería 1 af Prison Break var ekkert smá góð. Seinni serían fylgir
hinni fyrri ekki alveg nógu vel eftir. Hún er samt fín. Ég horfi á
hana því ég er búinn að kynnast persónunum ágætlega og vill sjá
hvernig fer fyrir þeim, svolítið þessi tilfinning að forvitnast
hvernig gengur hjá gömlum vinum.
Þá er þetta komið gott í bili enda nóg
framundan. Prófin byrja núna 2. des og standa til 19. des. Eftir
það býst ég við að refsa nokkrum spýtum í byggingarvinnu hjá
manninum sem setur Bjarna í Stebba Bjarna. Með þessu mun ég
náttúrulega refsa lóðunum miskunnarlaust ásamt því að spila
bolta.
I´m out
»
24.11.2006 11:22:57 / pesisvans
Kennarinn: jæja eru einhverjar
spurningar úr sal varðandi lokaprófið í Tölfræði?
Nemandi: Heyrðu varðandi krossana.. Kemur bara
spurning og svo nokkrir mismunandi valmöguleikar?
Kennarinn: uuuuu já. Bjóstu við einhverju öðru.
Stelpunni til varnar þá var hún að hugsa eitthvað dýpra held ég
því hún roðnaði ekkert smá þegar hún fattaði hvað hún hafði
sagt.

Einn bugaður maður
Gunni: Já er þetta Aron (yfirmaður flutningamála hjá
Eimskip).
Aron: Sá er maðurinn. Hvað segirðu Gunni?
Gunni: bara allt fínt þannig séð. Hvað með þig.. ertu
ekki hress?
Aron: Jú, jú bara góður. Er ekki allt í hers höndum
niðri á höfn?
Gunni: Uuu varðandi það. Það kom svolítið upp á með
bílasendinguna.
»
19.11.2006 21:38:52 / pesisvans
Það eru mikið af fólki þarna úti sem þarf
virkilega að taka sig saman í andlitinu og hugsa áður en það
talar. Í þeim fáu tilfellum sem mér finnst ég vera virkilega
svalari en annað fólk er þegar fólk segir eitthvað fáranlega
asnalegt og er alveg að meina það. Ég segi oft asnalega hluti en
innan í mér er ég samt hlæjandi yfir því hvað það er asnalegt og
óviðeigandi og kemst stundum að þeirri niðurstöðu að hlutirnir
eru eiginlega of asnalegir og þar um leið of fyndnir til að
sleppa því að segja þá, þrátt fyrir þá hnekki sem mannorð mitt
hlýtur. Mér finnst það sleppa að segja eitthvað asnalegt ef viss
meðvitund um ónettleika sé til staðar.
Sem dæmi um það þá var ég með fyrirlestur uppi í
Háskóla í fyrradag þar sem ég fjallaði um áhrif neyslusamfélagsins
á líkamsímynd. Stór og fancy titill og svona. En þá datt mér í hug
hversu fyndið það væri að byrja fyrirlesturinn á að biðja
áhorfendur um að velta einni spurningu fyrir sér. Spurningin var sú
klassíska “hefurðu heyrt um minnkabúið sem minnkaði og minnkaði og
minnkaði og var svo bara búið”? Hún kom efninu að sjálfsögðu ekkert
við en ég hugsaði bara með mér, hversu oft hefur maður tækifæri til
að vera með fyrirlestur upp í Háskólanum og fannst þetta of gott
tækifæri til að sleppa því. Brandarinn féll misjafnlega í
mannfjöldann sem skipti ekki máli því innan í mér hafði ég
frið.

En ástæðan fyrir færslunni er þríþætt.
Atburður 1
Ég var í tíma í skólanum á miðvikudaginn þar sem var verið að
fjalla um hinn eilífa Sigmund Freud. Fyrir framan mig sat glæsileg
kona sem hefur verið cirka 27 ára (en seinna kom í ljós að hún var
svona 8 ára innan í sér). Kennarinn var að tala um Ödipusarduld,
(ath. Það er óþarfi að lesa það sem er skáletrað, það er skýring á
Ödipusarduld sem tengist sögunni en er ekki nauðsynleg fyrir
áframhaldandi framvindu sögunnar en ég hafði hana samt með ef
einhver hefur áhuga) sem felst í því (í stuttu máli) að um 3-4 ára
aldur verða strákar uppteknir af typpinu á sér og fá kynferðislegan
áhuga á móður sinni. En vandinn er að pabbinn stendur í vegi fyrir
aðgangi að móður sinni. Strákurinn verður fljótlega hræddur um að
pabbinn viti þetta og verður hræddur um refsingu (þá geldingu).
Þessu pælir strákurinn í og fram kemur frávarp: ég hata pabba
verður pabbi hatar mig. Þetta veldur miklum kvíða. Strákurinn
ákveður því að verða alveg eins og pabbi, verða stór og fá sér
konu. Svo kemur tími friðar þar sem strákar leika sér með
strákum og stelpur með stelpum. Þangað til við kynþroska. Þá kemur
í ljós hversu mikil vandræðin verða. Með þessu útskýrði Freud
eitthvað af sálsýki. En nóg um það.
Í tilfelli stelpna kallast þetta Electruduld eða typpaöfund: Það er
mjög svipað og hjá strákunum áðan nema þær verða hrifnar af
pabbanum vegna typpaöfundar. Snúa sér að pabba í von um að hann
geti skaffað sér staðgengils reðurs í formi barns. Sem sagt stelpur
á þessum aldri öfunda pabba sinn fyrir að vera með typpi.
Þá heyrist í konunni fyrir framan mig segja, og hafið í huga að
þetta er fyrir framan fullan sal af fólki í háskólabíó, ég er
ekkert að tala um í góðra vina hópi. Hún segir þá: “það er líka
miklu betra að vera með svona innbyggt verkfæri, ekki þessi typpi
hangandi utan á manni” og hlær svo upphátt af sjálfri sér. Ég bara
no she didn´t. Sagði hún þetta í alvörunni. Yes she did. Þarna var
mér ekki beint misboðið en samt veeel hneykslaður. Kennarinn brosti
bara kurteisislega annað en ég sem hefði rekið hana út úr tíma og
fellt hana í áfanganum.
Atburður 2 (í beinu framhaldi af atburði 1)
Svo hélt kennarinn áfram og fór að tala um drauma og að ef konur
dreymir að vera á hestbaki eða vindla þá eru það duldar langanir í
kynlíf. Nema hvað, bætir kennarinn við, ef manni dreymir vindil þá
getur það líka bara verið vindill. En þá heyrist í “vinkonu” okkar
segja mjög hátt “ekki ef mann dreymir vindil og Bill Clinton” og
svo skellihló. Svo hló meira að segja eitthvað fólk. Á þessum
tímapunkti var mér stórlega misboðið og hugsaði með mér: “ekki
er fólk svona heimskt, engin af mínum vinum myndi láta þetta
út úr sér”. Í framhaldi af þessari hugsun minni lokaði ég
fartölvunni minni og gekk út úr tímanum. Það er bara sumt sem ég
læt ekki bjóða mér. (ég þurfti reyndar að fara aðeins fyrr úr
tímanum en fannst þetta samt alveg ástæða storm-off).
Atburður 3
Eftir að ég fór hneykslaður út úr tímanum settist ég upp í bílinn í
þeim tilgangi að endurvekja trú mína á mannkyninu. Af einhverjum
ástæðum endaði útvarpið á hinni eiturnettu FM957 þar sem hafsentinn
knái úr ÍH var með útvarpsþátt. Lagið Rehab með A. Winehouse
hljómaði í útvarpinu en það er lag sem fjallar um konu þar sem
vinir og vandamenn hennar eru að segja henni að fara í meðferð en
hún er ekki á þeim buxunum og segir bara no no no. Að lagi loknu
segir útvarpsmaðurinn eitthvað á þessa leið: “vóóó þetttta er
geeeeegggjað lag. En pælið í einu. Það er enginn smááááá kaldhæðni
í þessu lagi. Lagið fjallar um að hún eigi að fara í meðferð en hún
vill það ekkert, svo ef við skoðum hvað söngkonan heitir þá heitir
hún Amy Winehouse eða Amy Vínhús. HAHAHAHA þetta er rooooosaleg
kaldhæðni”. Svo kynnti hann næsta lag eða talaði um eitthvað djamm.
Það er náttúrulega engan vegin ásættanlegt að láta svona pælingu út
úr sér. Umsvifalaust slökkti ég á útvarpinu. Ég veit ekki hvað fær
hann til að segja þetta. Kannski er hann búinn að lækka þröskuldinn
svona lágt því hann þarf alltaf að vera kynna ný og ný lög og það
er kannski erfitt að koma alltaf með eitthvað frumlegt og ferskt
aftur og aftur. Kannski verður hann bara að nota þær kynningar sem
honum dettur í hug. Ég skil það alveg. Ég geri samt þá kröfu á fólk
að hugsa áður en talar, ef því dettur í hug að segja eitthvað svona
eins og Amy Vínhús þá á að vera einhver bjalla sem glymur eða rödd
sem segir “NEI NEI NEI er ekki í lagi heima hjá þér, auðvitað
segirðu þetta ekki upphátt”.
Kannski pæli ég of mikið í þessu og ætti bara að
brosa og hlælja. Það er hins vegar eitthvað sem ég geri ekki og mun
aldrei gera. Mér finnst samt sem áður Seinfeld og George eiga það
inni hjá mér að hneykslast yfir svona hlutum. Þeir hafa endað
ástarsambönd, slitið vinskap og brotið lög vegna minni
hneykslunaratriða en þessi hér að ofan. Ég veit ekki hvort ég er
aulinn í þessu sambandi og Heiðar Austmann og konan sem kom með
þessar athugasemdir séu bara geðveikt nett eða vice versa. Ég vil
samt halda að ég sé ekki aulinn.
»
27.10.2006 20:51:28 / pesisvans
Hann Hörður bróðir minn gaf mér nokkuð flotta
myndavél síðustu jól sem hefur komið að góðum notum. Sérstaklega
nýttist hún mér vel síðustu helgi þegar ég ákvað að skella mér á
Esjuna. Eins og flestir vita sem hafa farið á Esjuna er hún
þvílík útivistarparadís og það eru sönn forréttindi að hafa hana
svona girnilega við borgarræturnar. Það sem hins vegar færri
vita er að ef maður fylgist nógu grannt með á göngunni upp má
sjá ýmsa kynlega kvisti. Þessu komst ég svo sannarlega að á
göngu minni síðustu helgi. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af
ferð minni upp Esjuna.

Gangan reyndist sumum erfiðari en öðrum eins og sjá má á
svipbrigðum hennar

Þessi er heimsmeistarinn í að kyssa snáka. Ekki vissi ég að
það væri keppt í því

þetta er ekki photo-shop


Ungi með fjórar fætur

Hann hefur örugglega einhvern tíman haft stóra drauma.
Kannski ætlaði hann að verða lögfræðingur.

Eru þessi fyrirmæli af gefnu tilefni?

Ánægður með sjálfan sig

Er þetta bara eðlilegt?

Mjá..

Rosalega hefur húðin á honum haldist góð.

Var þetta ekki OFF

Þetta er aldeilis búið að vera skemmtilegt.
bæjó
»
21.09.2006 10:54:28 / pesisvans
Það var með vilja gert að hafa ekki Köben
beibí í fyrirsögninni því það væri of gegnsætt. En í öðrum
fréttum: Á miðvikudaginn er ég að fara til Köben með liðsfélögum
mínum og góðvinum úr Leikni R. Þetta er að verða árlegur
viðburður hjá okkur. Í fyrra fórum nokkrir eftir
keppnistímabilið og í ár gerum við enn betur og förum held ég
all flestir úr liðinu, það er reyndar glatað að Gulli og Freysi
koma ekki. Leiknir gerist líka svo grand að hlaupa undir bagga
með okkur sem erum flest allir fátækir námsmenn. Ferðin í ár
verður sérstök að mörgu leyti. Enn eitt að þessum leytum stendur
þó verulega upp úr. Það er fráhvarf tveggja máttarstólpa
liðsins, þeir Gæi og Haukur. Mér finnst hálf sjoppulegt að
kveðja þá á blogginu mínu og mun því ekki gera það. Þeir fá knús
og kossa í 1. persónu. Ég elska þá samt báða sem fjölskyldu.
Eitthvað var ég að flakka í my
documents og fann þá skjal sem heitir Köben. Í því hef ég
punktað niður nokkur skemmtileg atvik úr ferðinni í fyrra. Ég nenni
ekki að segja alla sólarsöguna bakvið hvert atriði og því stíla ég
meira inn á innanbúðarmarkhóp með áframhaldandi færslu.
Vallahh:
1. Mall-ferðin í Magazin með Óla.
Óli ætlaði að draga okkur í einhverja geggjaða verslunarmiðstöð sem
hann hafði einu sinni farið í. Galvaskir fórum við á lestarstöðina
til að taka lest eða strætó í þetta geggjaða mall sem Óli talaði
svo mikið um. Seinna kom svo í ljós að þetta mall var Magazín-búðin
á Strikinu sem við höfðum allir farið í daginn áður.
2. Sævar á barnum (samsbar)
Ekkert vera að eyða tíma í að fara á klósettið.
3. I´m gay and I´m loving it
Óli tók eitt kvöld þar sem þemað var samkynhneigð og ég fékk það
eftirsóknarverða hlutverk að vera kærastinn hans (bíæts eins og
hann kallaði það). Þegar ég var að tala við einhverja dani kom Óli
og reif í mig og setti mig fyrir aftan sig og sagði við fólkið:
"what is it that you don't understand, I'M GAY AND I'M LOVING IT,
stop talking to my boyfriend".
4. Handalaust break
Fer ekki út í það. Hafið bara eitt í huga, ekki taka bylgjuna við
stelpu sem er ekki með hendi. Það er frekar vandræðalegt.
5. Fallturninn.
Sumir eru hugrakkari en aðrir. Samt óþarfi að fara að gráta
hóst Doddi hóst.
6. Hjólaferð
Born to be wild hljómaði í eyrum okkar allra þegar við fórum í
eftirminnilegan og manndómsgerandi hjólatúr eina nóttina. Hann var
eflaust Topp 10 einstakir atburðir sem ég hef gert.
7. We buy people like you and blow them up
Buxmann að reyna útskýra áramótin hjá okkur fyrir Asíubúum.
8. CPR-dansinn.
Við fundum upp marga góða dansa. Eitt kvöldið fórum við að dansa á
staðnum við hliðina á Vega. Ég og Óli vorum búnir að fíflast í
svona hálftíma á gólfinu (sem okkur fannst eiga að vera dansgólf).
Að þessum hálftíma loknum ákváðum við að taka pásu og hleypa minni
spámönnum að. Sævar sá sér leik á borði og stökk út á dansgólfið og
eftir svona 30 sec dansmúf var honum vinsamlegast tilkynnt af
starfsfólki staðarins að þetta væri hvorki staður né stund til að
dansa. Hann var beðinn um að versla eitthvað hjá þeim og setjast í
sætið sitt eða fara út.
9. If there's any calls, just take á message.
Ási er kóngur hvar sem hann fer.
10.
Amazing Race
Við fórum í Amazing Race leik um Köben skipulagðan af vini hans
Hauks. Eins og þið getið rétt ýmindað ykkur þá var það
frábært.
11. Betlað á strikinu.
Í svona stórum og fleppuðum hópi er mjög auðvelt að mana menn í að
rífa síg úr að ofan og betla á strikinu.
12. Kjarri að múna í Nyhavn
Í svona stórum og fleppuðum hóp er hægt að fá Kjarra til að gera
allt. Verst hvað hann er orðinn vippaður. En hann fær tækifæri til
að hrista mjúka stimpilinn af sér úti.
13. Ég þarf greinilega að kynnast stelpunni first.
Þetta sagði við mig bugaður félagi sem gekk ekkert að veiða.
14. Mamma hans Óla er gay-eyey
Við erum svo sniðugur að breyta textum í lögum tíhí.
Jæja það er vika í hamingjuna. Ekki spurning að það sé kominn
mikill fiðringur í mann.
Röltandi niður minningarbrekku,
Pétur Örn Svansson
»
12.09.2006 23:32:34 / pesisvans
Ein aðalástæðan fyrir því að þættirnir um grínistann
Seinfeld og skrýtnu vini hans, George, Elaine og Kramer eru
svona langlífir og viðurkenndir er að það er hægt að horfa á þá
í svo mörgum víddum. Það er hægt að horfa á þættina aftur og
aftur því þættirnir eru svo djúpir og mikilfenglegir. Við fyrsta
áhorf hlær maður að öllum augljósu djókunum og þeim sniðugu
uppákomum sem þættirnir hafa upp á að bjóða. Næst fer
áhorfandinn að pæla í snilldarhönnun persónanna í þáttunum og
hinir allra hugrökkustu velja sér uppáhalds karakter. Svo fer
maður að pæla í undirliggjandi snilligáfu þáttanna í að stúdera
mannlegt atferli. Svona halda Seinfeld þættirnir alltaf áfram að
koma áhorfandanum á óvart. Þættirnir bjóða upp á svo mikið. Burt
séð frá húmornum og pælingunum, finnst mér mjög fyndið að
kærustur Seinfeld (og yfirleitt George) líta flestar út sem
fyrirsætur. Þó flestar þessarra snoppufríðu leikkvenna komu og
fóru án þess að láta fara mikið fyrir sér þá hef ég tekið eftir
því að nokkrar þeirra eru frægar í dag. Mig langar að taka saman
svona þær sem ég man eftir, ekki í neinni sérstakri röð.
Kristin Davis. þó að Kristin Davis hafi verið í
Melrose Place í smástund þá var hún samt ekkert orðinn það fræg
þegar hún kom fram í Seinfeld sem Jenna í þáttunum The Pothole og
smá í The Butter Shave. Stuttu eftir þetta fór hún að leika
Charlotte í Sex and the city.

Catherina Keener. Hún var rétt að byrja þegar
hún lék kærustu Seinfeld, abrýðissama málarann Ninu í þættinum The
Letter. Síðan þá hefur hún slegið í gegn í myndum á borð við: Boys,
Out of sight, 8MM, Being John Malkovich (óskarstilnefning), S1m0ne,
40 year old virgin og núna síðast í Capote, sem hún fékk
óskarsverðlaunatilnefningu fyrir.

Jane Leeves. Flestir ættu að kannast við hana
sem Daphne úr Fraiser. Áður en hún lék í Fraiser lék hún hins vegar
jómfrúnna Mörlu í þáttunum The Virgin og The Contest.

Debra Messing. Hún var ekkert sérstaklega fræg
þegar hún fékk hlutverk Beth í þáttunum The Wait Out og svo ári
síðar í The Yadda yadda. Frægust er hún samt fyrir hlutverk sitt
sem hommavinurinn Grace í þáttunum Will og Grace.

Lauren Graham. Hún lék Valerie í The Millenium.
Hún er samt eflaust þekktari fyrir að leika Lorelai Gilmore í
Gilmore Girls.

Melinda Clarke. Úhh beibí. Hún er rosaleg í The
O.C. sem Julie Cooper-Nichol og slagar vel í topp 5 Milf listann.
En eins og svo margar aðrar hefur hún líka leikið kærustu Seinfeld.
Það gerði hún í þættinum The Muffin Tops og svaraði nafninu
Alex.

Lori Loughlin. Hún er ekkert rosalega fræg en
hefur leikið í mörgum þáttum. Til dæmis má nefna Spin City, The
Drew Carey Show, Jake in progress og Full House. Hún kom við sögu í
Seinfeld þegar hún lék Patty í Serenity Now.

Teri Hatcher sker sig úr á þessum lista vegna þess
að hún er eina konan hérna sem ég hef hitt í eigin persónu, já já
ég lenti einu sinni á spjalli við hana þegar hún kom til Íslands..
nóg um það. Teri þarf vart að kynna en hún hefur leikið víða t.d. í
Love Boat, Lois & Clark og nú síðast í Desperate Housewifes.
Teri lék kærustu Seinfeld, hana Sidru, í þættinum The Implant.

Marcia Cross. Hún leikur með vinkonu minni í
Desperate Housewifes. Einnig hefur hún leikið í Melrose Place og
eflaust einhverju meira. Í Seinfeld lék hún Dr. Sarah í The
Slicer.

Jennifer Coolidge. Hún er eflaust frægust fyrir að
leika mömmu hans Stifler í American Pie og starta hinum víðfarna og
hjálpsama orðaleik: MILF. Einnig hefur hún leikið í bíómyndum eins
og Legally blonde og Night at the Roxbury. Hún lék
kærustu Seinfeld sem var nuddari en vildi ekki nudda Seinfeld í
þættinum The Massause.

Jami Gertz. Maður hefur nú alveg séð þær frægari,
ég viðurkenni það. Hún Jami leikur í þáttunum Still Standing ásamt
feita gaurnum úr The Full Monty. Í Seinfeld lék hún Jane í The
Stall.

Marlee Matlin. Hún lék í Seinfeld þættinum The Lip
Reader. Þar lék hún Laura sem var heyrnalaus tennisboltasækir og
gat lesið varir. Að sjálfsögðu þufti George að nota hana til að
lesa varir fyrrverandi kærustu sinnar. Marlee Maltin hefur leikið í
helling af þáttum og bíómyndum. Rjóminn af því er Spin City, ER,
Judging Amy (ekki beint rjómi), The Practice, Desperate Housewifes,
Law and order og The West Wing.

Christine Taylor. Hún er konan hans Ben
Stillers og hefur leikið í mörgum góðum þáttum og bíómyndum. Dæmi:
Ellen, Murphy Brown, Friends, The Brady Brunch Movie, Spin City,
Zoolander, Dodgeball, Arrested Development og My name is Earl. Í
Seinfeld lék hún Ellen í þættinum The Van Buren Boys. Ekki slæmt að
hafa leikið í Seinfeld, Arrested development og Friends.

Janeane Garofalo. Hún er svona borderline gellu
leikkona og leikur yfirleitt konu sem er sæt og sjarmerandi en samt
með útlitsissjúss. Hún hefur leikið í mjög miklu. Ef þig langar að
sjá meira af henni getur þú horft á The Truth about Cats and Dogs
eða Seinfeld þættina The Foundation og The Invitations en þar
leikur hún Jeannie.

Courteney Cox. Hana þarf varla að kynna en hún
er ein vinanna í Friends. Einnig var hún mjög góð í Ace Ventura. Í
Seinfeld lék hún Meryl í The Wife.

Amanda Peet. Hún lék Linette í Seinfeld þættinum Summer of
Goerge. Fyrir utan það hefur hún leikið í The Whole Nine Yards,
Identity, Melinda and Melinda, A lot like love og Syriana.

Þessi listi er eflaust ekki tæmandi en ég tel mig samt fara langt
með það. Fróðir menn eru hvattir til að koma með ábendingar um
fleiri spúsur. Ég nenni samt ekki að fá komment um að tæknilega séð
hafi þessi ekki verið kærasta Seinfeld og eitthvað þannig nördatal.
Mér fannst samt mjög gaman og um leið fróðlegt að rifja þetta
upp.
Live well and prosper.
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|